Höfum fengið fyrirspurnir um hvort ekki sé hægt að skrá færri en 3 belgi.

Það er ekki hægt.

Hins vegar er hægt að hafa fleiri belgi og þá verður að tilkynna það.

það er komin forgjöf fyrir Sigurborg

 

Það eru komin ný forgjafarskírteini fyrir allar skútur nema Sigurborg og Íris

Erum að reyna að finna út af hverju þessar 2 hafa ekki skilað sér

 

 

ÆFINGABÚÐIR AKRANESI 2020  

Dagskráin byrjar sunnudaginn 28. júní eftir hádegi og æft verður alla daga fram á fimmtudag en á föstudag og laugardag verður æfingabúðamót. Nánari dagskrá er að finna hér á eftir. Áríðandi er að fólk skrái sig fyrir 26. júní og gott væri að vita hvort börn verða ein eða með foreldrum og hvort þau gista í sameiginlegri aðstöðu eða ekki. 

Aðstaðan:

Siglingaaðstaðan á Akranesi er sandfjaran við Langasand. Gistiaðstaða fyrir þátttakendur og aðstandendur þeirra verður í Grundarskóla, sem er rétt hjá sundlaug Akraness. Þar verður aðstaða til morgunverðar og funda. Þeir sem eru í gistingu verða að koma með dýnur og annan viðlegubúnað sjálfir. 

Dagskrá: 

Sunnudagur 28. júní er komudagur á Akranesi. Þátttakendur mæta á svæðið, taka báta af kerrum og sjósetja, koma sér fyrir í skólanum o.s.frv. Ekki verður boðið upp á mat eða kaffi þann daginn. Um kvöldið verður farið yfir uppbyggingu vikunnar. Annars verða dagarnir skipulagðir í meginatriðum á eftirfarandi hátt:

 08:00 - 08:40                 Morgunmatur 

08:40 - 09:40                  Æfing í sal / útihlaup 

09:40 - 10:20                  Fundur um viðfangsefni dagsins 

10:20 – 11:00                 Bátar gerðir sjóklárir 

11:00 - 13:00                  Æfingar á sjó 

13:00 - 14:00                  Hádegismatur með léttum fundi á eftir 

14:00 - 15:30                  Æfingar á sjó 

15:30 - 16:00                  Millimál / kaffi 

Eftir hádegi föstudaginn 3. júlí og laugardaginn 4. júlí verður haldið æfingabúðamót. 

Frágangur og brottför sunnudaginn 5. júlí en ekki verður boðið upp á mat eða kaffi þann daginn.


Þjálfarar

Yfirþjálfari verður Gunnar Kristinn Óskarsson en auk hans koma þjálfarar frá siglingafélögunum á landinu og sameina þeir krafta sína í að gera þessa viku einstaklega skemmtilega og eftirminnilega. 

Matarmál 

Innifalið í þátttökugjaldinu er: Morgunverður, brauð, álegg, morgunkorn ofl., sem framreiddur er í skólanum. Hádegisverður, t.d. súpa ofl. Millimál / kaffi, t.d. brauð og ávextir Grillpartí fimmtudaginn 2. júní. (staðsetning nánar auglýst síðar)

Kostnaður

Gjald fyrir æfingabúðir er fyrst og fremst matarkostnaður og gildir því einu hvort heldur sem gist er í sameiginlegri aðstöðu eða ekki. Gert er ráð fyrir að verðið verði um 18.000 krónur. (Sama gjald er fyrir aðstandendur og þjálfara) Hægt er fyrir aðstandendur að kaupa sig sérstaklega inn í grillpartíið fyrir 2.500 kr.

Skráning 

Skráningin fer fram hjá félögunum og skulu þátttakendur tilgreina hvort þeir séu í gistingu í skóla. Þá eru aðstandendur einnig beðnir um að skrá sig í mat eingöngu annars vegar eða hins vegar í mat og gistingu ef ætlunin er að taka annað hvort. Félögin eru svo beðin um að koma skráningarlistum sínum til Siglingasambands Íslands eigi síðar en 26 júní: netfangið er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Það sem á að koma fram í skránigunni:

Nafna þáttakanda

Sími Þáttakanda

Kennitala

Nafna forráðamann 

Sími forráðamann 

Nafna forráðamann 2 

Sími forráðamann  2

Hvort að hann ætlar að gista í skólanum

Bátur 


Annað 

Félögin eru skildi að skaffa umsjónar- og ábyrgðarmenn þeirra þátttakenda sem verða í gistingu í skóla. Þeir ábyrgðar aðilar sem koma með þátttakendur geta átt vona á að fá einhver minniháttar störf sem fylgja æfingabúðum sem þessum. 

Afþreying Fjölmargt er í boði á Akranesi og nágrenni fyrir foreldra og aðstandendur. Fjölmargir veitingastaðir eru í bænum auk safna og útivistarmöguleika. Við hvetjum alla til að taka reiðhjólin með. Allar nánari upplýsingar um bæinn og afþreyingu þar má finna á http://www.west.is/is/west/town/akranes