Í ár verður keppt í siglingum á unglingalandsmóti UMFÍ. Það er siglingaklúbburinn Drangey á Sauðárkróki sem sér um keppnina og verður keppt á frábæru siglingasvæði þeirra. Skráningar á unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki líkur nú um helgina en nauðsynlegt er að skrá sig inn á mótið á heimasíðu mótsins sem er að finna hér. SkráningTilkynningu um keppni er einnig komin á vefin og hana er hægt að finna hér.  NOR

fingabudirNú í liðinni viku voru Æfingabúðir SÍL.  Í þetta sinn voru þær haldnar á Sauðárkróki í umsjón Siglingaklúbbsins Drangeyjar.  Siglingasvæðið við Sauðárkrók er mjög skemmtilegt og stutt er í öldur og góðan vind. Eins og vanalega þá var erlendur þjálfari með í æfingabúðunum og í ár var það Bernat Gali frá Spáni sem hjálpaið okkur. Mæting á búðirnar var nokkru minni í ár en verið hefur undanfarin ár.  Færri Optimistar voru en vanalega og munar þar helst um að ekki komu neinir Optimist siglarar frá Nökkva og eða Ými auk þess sem ekki tveir ungir Optimsist drengir úr Brokey eru á Írlandi við keppni á sama tíma.  Ágæt mæting var í Laser Radial hópinn en þar hefði þó munað um þáttákendur frá Ými og Þyt. Á Laugardag var svo haldið Æfingabúðamótið. Sigldar voru þrjár umferðir á Optimist og fjórar í Radial flokki og Opnum flokki.  Fresta varð fyrstu umferð um rúma klst vegna veðurs en um 11 kom hafgolan og hægt var að hefja keppni. Hafgolans styrktist þegar leið á keppnina og var mest um 8 m/s, með golunni kom nokkur alda sem var Optimistunum erfið. Í fyrsta sinn var veittur Eimskipsbikarinn en hann fékk það félag sem stóð sig best í öllum flokkum. Bikarinn féll í skaut Brokeyjar manna í þetta skipti.  SÍL þakkar félögum í Drangey fyrir frábært starf og skemmtilegar æfingabúðir. Myndir og viðburðir eru á facebooksíðu Æfingabúðanna

Úrslit urðu eftirfarandi

Opnunarmót var haldið Laugardaginn 24.maí. Sigld var hefðbundinn leið frá Reykjavík til Hafnarfjarðar.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Sæti Bátur Sigldur tími. Leiðréttur tími Skipstjóri Íslandsbikar
1 Þerna 2:24:40,33 2:17:08 Gunnar Geir Halldórsson 10
2 Lilja 2:24:05,33 2:21:03 Arnar Freyr Jónsson 8
3 Dögun 2:43:42,02 2:21:52 Þórarinn Ásgeir Stefánsson 6
4 Ögrun 2:29:46,64 2:30:12 Guðmundur Gunnarsson 5
5 Sigurvon 2:39:34,77 2:36:00 Ólafur Már Ólafsson 4

midsumarmotSiglingafélag Reykjavíkur - Brokey hélt um helgina "Miðsumarmót Kæna 2014" Keppnin fór fram fyrir utan aðstöðu félagsins við Ingólfsgarð. Brautin var þríhyrningur þar sem bauja 1 var fyrir utan Nýherja, bauja 2 var rétt við Engey og bauja 3 var við Sólfarið. Optimist bátar tóku þríhyrning en Opinn flokkur sigldi þríhyrning og pulsu. Algert log var á laugardeginum og keppni því frestað þann dag. Skipstjórafundur var kl. 9 á sunnudagsmorgun og ljóst að keppnin yrði skemmtilega því mjög stöðugur 5 - 6 m/s til að byrja með en aðeins dró úr vindi þegar leið á daginn. Alls voru sigldar  þrjár umferðir og allir keppendur voru gríðalega ánægðir þegar komið var í land eftir góðan siglingadag. Við verðlaunaafhendingu var boðið upp á veitingar að hætti félagsins því allir vita að Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey er ekki bara siglingafélag :) Við þökkum öllum foreldrum og sjálfboðarliðum fyrir hjálpina.

 Hér koma síðbúin úrslit í lokamóti kjölbáta. Keppni var með hefðbundu sniði og var ræst við Ingólfsgarð í Reykjavíkurhöfn kl .10.00 í hægum andvara.  Vindur náði sér þó á strik og úr varð skemmtileg sigling yfir í Kópavog. Það voru sjö áhafnir sem tóku þátt í mótinu og skiluðu þeir sér í mark hjá Ými í Kópavogi eftir um 2 klukkustunda siglingu.

Keppnisstjórn var í höndum Ólafs Bjarnasonar, Péturs Jónssonar og Eyþórs Aðalsteinssonar.

Úrlsit má sjá hér að neðan.