knorr

Í tengslum við æfingabúðir SÍL í Suðurnesjabæ verður haldið æfingabúðamót föstudaginn 1 júlí og Laugardaginn 2. júlí.  Gert er ráð fyrir þátttöku allra þeirra sem skráðir eru á æfingabúðir og þurfa þeir ekki að skrá sig sérstaklega 

Tengill á Tilkynningu um keppni

thjalfnamskEins og greint hefur verið frá verða Æfingabúðir SÍL haldnar í Reykjanesbæ þetta árið. Undirbúningru er langt kominn og Íslandsvinurinn Tom Wilson verður okkur innan handar í ár.

Skráning fer fram með því að senda nafn þátttakenda, félag og upplýsingar um greiðanda á  sil(at)silsport.is -

Skráningu lýkur þann 20 júní 2022

Upplýsingar um skráningu, gistingu og aðstöðu er að finna á hlekknum hér á eftir Æfingabúðir

 

sillogoKomnar eru tilkynningar um keppni fyrir nokkru af mótum sumarsins. Hægt er að nálgast tilkynningarnar hér á síðunni undir hlekknum Mótahald og smella á blálitað nafn viðkomandi keppni. 

Hlekkur á Mótaskrá 2022

47624431941 d09e1934d0 hNú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á Miðsumarmót Kæna sem fram fer á Skerjafirðinum um helgina. Hægt er að nálgast tilkynningu um keppni hér

rs aero akureyriEins og áður hefur verið greint frá verður haldið alþjóðlegt siglingamót á Akureyri í sumar sem haldið er af Nökkva, SÍL og RS Aero klassanum. Keppt verður á RS Aero 7 bátum sem fluttir verða til landsins vegna mótsins. Búist er við keppendum víða að úr heiminum og hafa fjölmargar fyrirspurnir borist um mótið. Tilkynning um keppni hefur birst á heimasíðu RS Aero klassan þar sem skráning á mótið fer fram. Gert er ráð fyrir að keppnin standi í 3 daga en daginn fyrir mót verður æfingadagur þar sem þeim sem ekki þekkja til bátsins gefið færi á að kynnast bátnum og æfa sig fyrir mótið sjálft.  Gert er ráð fyrir að hámakri 40 keppendum og skipst verður á bátum út keppnina.  Nánari upplýsingar um keppnina, skráningu og tilkynnigu um keppni má finna á heimsíðu hennar https://www.rsaerosailing.org/index.asp?p=event&eid=2218