Opið er fyrir umsóknir úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2019.

Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 11. janúar 2021.

Umsóknarferlið í ár er með sama hætti og áður en þar sem mótahald á árinu 2020 var afar óhefðbundið vegna afleiðinga Covid-19 þá gæti komið til breytinga á úthlutunum þannig að heildarframlag sjóðsins verði ekki allt til úthlutunar.

Allar breytingar skulu unnar í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og staðfestar af því.

Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2020.

Áætlað er að greiða út styrki úr sjóðnum í febrúar/mars 2021.
Við stofnun umsóknar fær umsækjandi senda vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send.

Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra.

Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við undirritaða í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Vinsamlegast komið ofangreindum upplýsingum á framfæri við íþrótta- og ungmennafélög innan ykkar vébanda.

Núgildandi reglugerð sem tók gildi í dag og gildir til 12. janúar 2021 

Samkvæmt henni er 

  • Öll keppni í íþróttum, bæði barna og fullorðinna, eru óheimil á tímabilinu.

 

Því miður fyrir íþróttastarf var birt í dag frétt á vef heilbrigðisráðuneytis þar sem fram kemur að heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi óbreyttar til 9. desember næstkomandi.


Þetta þýðir að síðasta skjal sem við birtum með uppfærðar reglur vegna COVID-19 frá 18 nóvember gildir áfram til amk 9. desember.

 

Þetta er gert í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis sem ræður gegn því að slaka á sóttvörnum í augnablikinu vegna þróunar faraldursins síðustu daga. Áður hafði verið vonast til þess að einhverjar tilslakanir yrðu gerðar 2. desember nk.

Í frétt ráðuneytisins kemur fram að í ljósi fjölgunar smita og hópsýkinga, ásamt því að fjöldi þeirra sem greinast utan sóttkvíar stefnir í línulegan vöxt og hugsanlega veldisvöxt, þá sé tillaga sóttvarnalæknis að engar breytingar verði gerðar á gildandi sóttvarnaráðsstöfunum, þ.e. takmörkunum á samkomum og skólastarfi næstu eina til tvær vikur.

Við endurskoðun sóttvarnaráðstafana, sem hefjast þegar í stað, verður meðal annars horft til þess hvort að tilefni sé til að gera tilslakanir á landsbyggðinni umfram höfuðborgarsvæðið í samræmi við hugleiðingar sóttvarnalæknis í minnisblaði dagsettu í dag, 30. nóvember.

Þessi tíðindi þýða, því miður, að engar breytingar verða á takmörkunum á íþróttastarfi til 9. desember nk.

Æfingar barna á leik- og grunnskólaaldri f. 2005 og síðar eru heimilar jafnt úti sem inni, það á einnig um sundæfingar.

Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu í íþróttastarfi eins og er í grunnskólastarfi. Fjöldamörk í hverju rými fara eftir reglugerð um takmarkanir á skólastarfi. Leikskólabörn og börn í 1.-4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.-10. bekk að hámarki 25. saman. Grímuskylda þjálfara gildir gagnvart börnum í 8.-10. bekk sé ekki mögulegt að viðhafa 2m fjarlægðarreglu. Börn í 1.-7. bekk eru undanþegin grímuskyldu, sé ekki unnt fyrir börn í 8.-10. bekk að viðhafa 2m fjarlægðarreglu utan æfingasvæðis ber þeim að nota grímu.

Áfram gildir að íþróttir fullorðinna, þar með talið æfingar og keppni, hvort sem er innandyra eða utandyra, með snertingar eða án, eru óheimilar. Einstaklingsbundnar æfingar, án snertingar eru heimilar svo sem útihlaup og sambærileg hreyfing.

Þrátt fyrir COVID og annað sem er ekki alltaf nógu upplífgandi á árinu 2020 situr stjórn SÍL ekki auðum höndum

Núna er búið að koma í höfn að eftirfarandi siglingakonur komast inní Emerging Nations Virtual Training Group hjá World Sailing

Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir, Brokey

Tara Ósk Magnúsdóttir, Þyt

Einnig komust eftirfarandi þjálfarar inní Emerging Nations Virtual Training Group hjá World Sailing

Gunnar Kristinn Óskarsson, Brokey

Ísabella Sól Tryggvadóttir, Nökkvi

 

Eftirfarandi í eru uppfærðar reglur vegna COVID-19 frá 18 nóvember