Siglingaþing var haldið þann 22 febrúar síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Fyrir þinginu lágu hefðbuninn þingstörf og mættu fulltrúar siglingafélagan til að fara yfir mótaskrá og fjármál sambandsins auk þess að velja því nýja stjórn.

Fáar tillögur lágu fyrir þinginu en þó lá fyrir stjórn tillaga um breytingar á kappsiglingafyrirmælum er varða íslandsmeistaramót er varðaði fjölda umferða og uppstilllingu brauta. Nokkur umræða spratt um tillögur stjórnar sem á endanum var felld. Eigi að síður kom fram skýr vilji til þess að SÍL gegndi veigameira eftirlitshlutverki með mótahaldi.

Nokkrar breytingar urðu á stjórn sambandsins en þau Sigurjón Magnússon Kayakklúbbnum, Ragnar Hilmarsson Þyt, Gunnar Geir Halldórsson Þyt, Marcel Mendes da Costa Brokey gáfu ekki kost á sér til frekari stjórnasetu en í þeirra stað voru þau  Ríkarður Daði Ólafsson Ými, Markús Pétursson Þyt, Hulda Stefania Hólm Þyt, Sigríður Ólafsdóttir Ými, og Ólafur Bjarnason Ými kosinn. Aðalsteinn Jens Loftsson verður sjálfkjörinn til áframhaldandi formennsku Siglingasambands Íslands.

Stjórnin mun skipta með sér verkum á næsta stjórnarfundi.

Þinggerð fundarins verður birt á næstu dögum.

siglingaþing2020sm 2

sillogo

 

Boðað hefur verið til 47. Siglingaþings SÍL Laugardaginn 22. febrúar n.k. Þingið fer fram í Sal E í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og verður sett kl. 12:00.  Dagskrá verður samkvæmt 4. grein laga sambandsins. Fulltrúar á þingi koma úr röðum aðildafélaga SÍL og hefur hvert félag rétt á að senda 3 fulltrúa.  Þeir sem áhuga hafa á að koma tillögum á framfæri á þingið er bent á að hafa samband við tillögubæra fundarmenn/félög skv. 3. grein laga sambandsins. Tillögur um lagabreytingar og málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skal tilkynna stjórn SÍL bréflega minnst 3 vikum fyrir þingið.

Úlfur Hróbjarsson fékk gullmerki SÍL á 46 Siglingaþingi

Úlfur

 

 

Vegna þess að nú erum við með þá stöðu að ekki tókst að sigla Íslandsmót á kænum á auglýstri helgi og það tókst heldur ekki að sigla nema 2 umferðir á Íslandsmóti á kjölbátum á auglýstri helgi, þá hef ég beðið Jón Pétur Friðriksson starfsmanni SÍL að fara yfir hvað beri að gera í þessum málum og hann er með heimild til að óska eftir aðstoð frá ÍSÍ um hvað beri að gera. Ég mundi hvorki vilja vera í þeirri stöðu að vinna eða tapa titli á grunni tveggja umferða nema að óvilhallir aðilar hafi kannað réttmæti þess.

Stjórn SÍL vill vekja athygli á að unnt er að sækja um styrki til að fara á mót. Senda skal umsóknir á netfang SÍL

Subcategories