Markmið ferðarinnar var að heimsækja siglingafélög í Noregi, kynnast starfsemi þeirra og skoða hvað þau gera vel, hvað við getum lært af þeim og einnig hvað við sjálf erum að gera vel. Upphaflega stóð til að heimsækja fjögur mismunandi siglingafélög og eina skipulagða keppni, en tafir á flugi riðluðu dagskránni þannig að hópurinn náði aðeins að heimsækja þrjú félög auk keppninnar. Þrátt fyrir það var ferðin afar lærdómsrík og opnaði augu þátttakenda fyrir fjölmörgum tækifærum til úrbóta.

Moss

Hópurinn kom til Moss þar sem Per Christian Bordal, framkvæmdastjóri norska siglingasambandsins, tók á móti honum á mótorbáti. Þaðan var haldið á keppnissvæði Norsk Seilsportsliga.

IMG_6595_2.jpg

 

Norsk Seilsportsliga er deildarkeppni í siglingum þar sem allt að fimm bátar keppa í hverjum flokki og áhafnir skiptast á bátum. Allt að 15 áhafnir geta tekið þátt í hverju móti og útsláttarfyrirkomulag er notað til að finna sigurvegara. Á keppnissvæðinu hitti hópurinn einnig Guru Steine, formann norska siglingasambandsins, áður en haldið var áfram til Moss Seilforening.

686165300_1657805928694414_2805187490747586920_n.jpg

 

Moss Seilforening

https://www.moss-seilforening.no/

Í Moss Seilforening tók formaðurinn Pål Einar Berntsen á móti hópnum. Þar var aðstaðan skoðuð og rætt um tekjustofna félagsins, barna- og unglingastarf sem og tengingu þess við fullorðinsstarf.

 Mikil áhersla er lögð á starf fyrir börn á aldrinum 8–11 ára með það að markmiði að byggja upp sterkan grunn fyrir framtíðarsiglingasamfélag. Félagið telur um 600 meðlimi og allir félagsmenn sinna fjögurra klukkustunda sjálfboðavinnu á ári. Félagið er með einn starfsmann en formaðurinn vildi fleiri starfsmenn, sérstaklega til að halda betur utan um sjálfboðaliðastarf, til að styrkja starfsemina enn frekar.

Norsk Seilsportsliga

https://seilsportsligaen.no/

Magnus Hedmark, viðburðarstjóri hjá Sail Logic, tók á móti hópnum til að kynna fyrir honum starfsemi og skipulag mótaraðarinnar. Sem skipuleggjandi ber hann m.a. ábyrgð á flutningi báta milli keppnisstaða og því að tryggja að allur nauðsynlegur búnaður sé til staðar fyrir bæði keppendur og áhorfendur.

Á þessum tíma voru tvær deildir í gangi, Meistaradeild og 1. Deild.  Hver deild er með fjórar keppnir yfir  tímabilið á mismundandi stöðum. En einnig keppt er í kvenna- og ungmennadeildum. Lögð er áhersla á að dreifa keppnum um landið til að jafna ferðakostnað og aðgengi þátttakenda.

688782103_1291708262938236_587500209773367639_n.jpg

Asker Seilforening

https://www.askerseil.no/

 

688767215_2587587588303709_7573588419328505305_n.jpgÍ Asker tók Bente Vikenes, formaður félagsins, á móti hópnum. Asker Seilforening er með um 900 meðlimi og leggur mikla áherslu á að greina þarfir félagsmanna eftir aldri og reynslu og mæta þeim með markvissum námskeiðum og viðburðum.

Félagið notar öflug markaðstól til að styrkja stöðu sína og fjölga meðlimum. Opin hús eru haldin reglulega til að kynna íþróttina og barna- og unglingastarf er sérstaklega vel skipulagt. Mikil áhersla er lögð á að börn sem hefja þátttöku fái góðan stuðning til áframhaldandi þátttöku. Markmiðið er að allir mæti með tilhlökkun og fari heim með bros á vör.

Kongelig Norsk Seilforening (KNS)

https://www.kns.no/

Síðasta félagið sem hópurinn heimsótti var Konunglega norska siglingafélagið (KNS). Geir Dahl Andersen, yfirþjálfari, tók á móti hópnum í Seilsportsenter Ulabrand, sem hýsir kænudeild félagsins.

685722828_2239952296747787_129861197766371594_n.jpgÞar fer fram umfangsmikið barna- og unglingastarf og allt að 1.000 börn taka þátt í sumardagskrá félagsins. Slík starfsemi krefst mikils skipulags og áskorun getur falist í að ráða reynda leiðbeinendur. Þegar hópurinn heimsótti félagið var keppni í gangi með um 80 þátttakendum.

KNS er með um 4.500 meðlimi og rekur tvær hafnir auk kænudeildarinnar, sem sýnir umfang og styrk félagsins.