Hólmfríður á heimsmeistaramóti U21 í Portúgal
- Details
Hólmfríður Gunnarsdóttir úr Brokey er stödd í Portúgal til að taka þátt í heimsmeistaramóti U21 á ILCA 6 (áður Laser Radial) Keppendur eru 80 frá 34 löndum og ljós er að keppnin verður hörð. Hólmfríður hefur verið við æfingar í Portúgal síðustu viku til að kynnast aðstæðum og taktík á svæðinu. Hægt er að fylgast með á heimasíðu mótisins https://2024ilcau21.ilca-worlds.org/ og á FB síðu https://www.facebook.com/groups/450039050911252
Gott málþing SíL
- Details
Siglingasamband Íslands stóð fyrir málþingi í byrjun mánaðarins í húsakynnum Þyts í Hafnarfirði. Gunnar Haraldsson formaður setti þingið og kynnti til leiks þrjá fyrirlesara sem fjölluðu þeir allir um málefni tengd starfsemi íþróttafélaga. Jón Reynir Reynisson sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ hélt erindi um fyrirmyndafélaga ÍSÍ og hvernig það nýtist við stjórnun Íþróttafélaga og auðveldar alla vinnu með stöðluðum vinnubrögðum og handbókum. Um er að ræða frábært verkefni af hálfu ÍSÍ sem nýtist í starfi allra íþróttafélaga. Að loknu erindi Jóns spunnust góðar umræður uns Þóra Gunnarsdóttir frá Skautasambandi Íslands hélt erindi um sjálfboðaliða, hvernig standa á að því að finna þá, halda utan um starf þeirra og halda þeim ánægðum í starfi. Erindi Þóru var einstaklega áhugavert enda hefur hún langa reynslu í að starfa með sjálfboðaliðum sem sjálfboðaliði. Var hún meðal annars tilnefnd til íþróttaeldhugans árið 2022. Eftir miklar umræður um sjálfboðaliðann tók Vésteinn Hafsteinsson Afreksstjóri ÍSÍ við og fjallaði um afreksstarf og hvað þarf til til að skapa rétta umgerð utan um afreksstarf. Erindi Vésteins var afar vel tekið og upplýsandi fyrir siglingafélögin. Gerður var góður rómur að framtaki SÍL og vonast er eftir fleiri slík þing verði haldin í framtíðinni.
Vel heppnað þjálfaranámskeið
- Details
Siðustu fjóra daga hafa 19 umgmenni sótt þjálfaranámskeið SÍL. Námskeiðið er fyrsti liður í innleiðingu á nýju þjáfaramenntakerfi SÍL. Gunnar Hlynur Úlfarsson og Ísabella Sól Tryggvadóttir leiddu námskeiðið en þau hafa verið undir leiðsögn Rob Holden fyrrum þróunarstjóra World Sailing til að undirbúa námið. Nemendur voru úr 5 siglingafélögum og stoðu sig með prýði. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir.
Page 6 of 58