IRC forgjafir 2016
- Details
Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir forgjöf kjölbáta 2016. Að vanda eru þetta IRC forgjafir gefnar út af RORC í Bretlandi. Til að sækja um forgjöf þarf að fylla út viðeigandi eyðublað sem er að finnna á hlekkjum hér að neðan og senda á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Nánar upplýsingar um umsóknir má finna á heimasíðu IRC. Ársrit IRC er einnig komið skrifstofu SÍL og þeir sem óska eftir því að fá eintak sent, geta sent beiðni þess efnis á netfangið hér að ofan.
Umsóknareyðublöð er að finna á hlekkjum hér að neðan
Endurnýjun forgjafar (aðeins ef bátur hefur haft gilda forgjöf á árunum 2011-215)
Ný forgjöf (ath: skráin er þjöppuð)
Siglingaþing 2016
- Details
Nú um helgin fór fram 43. Siglingaþing Siglingasambands Íslands. Þingið gekk vel og hratt fyrir sig ofg fá átaka mál sem lágu fyrir því.
Samþykkt var mótaskrá fyrir 2016 og fyrir 2017 einngi sem lögð voru fyrir þingið ný kappsiglingafyrirmæli SÍL sem munu birtast fyrir sumarið.
Á þinginu var kosinn nýr formaður Jón Pétur Friðriksson auk þess sem ný stjórn var kosin:Arnar Freyr Birkisson, Kjartan Sigurgeirsson, Ólafur Már Ólafsson
og Kristján Sigurgeirsson. Varamenn voru kosnir Andri Þór Arinbjarnarsson, Martin Swift og Úlfur H. Hróbjartsson
SIGLINGAÞING 2016
- Details
43. þing Siglingasambands Íslands verður haldið laugardaginn 20. febrúar n.k. Þingið fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og verður sett kl. 12:00.
Dagskrá verður samkvæmt 4. grein laga sambandsins.
Tillögur um lagabreytingar og málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skal tilkynna stjórn SÍL bréflega minnst 3 vikum fyrir þingið.
Að venju munu kosningar til stjórnar fara fram á þinginu og eru þeir sem vilja taka þátt í stjórnarstörfum beðnir um að bjóða sig fram við stjórn SÍL á netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Einnig verður kosið um formann en Úlfur Hróbjartsson mun ekki gefa kost á sér til frekari formennsku og verður því spennandi að vita hver tekur við af honum.
Viðurkenningar á Uppskeruhátið SÍL
- Details
Nú um helgina fór fram Uppskeruhátið SÍL 2015. Góð stemmning var í félagsheimili Þyts í Hafnarfirði þar sem hófið fór fram. Veittar voru viðkenningar fyrir frammistöðu á árinu. Íslandsbikarinn hlaut áhöfnin á Skegglu fyrir góða frammistöðu í sumar, en Skegla sigraði á öllum stigamótum til Íslandsbikars í sumar og var því með fullt hús stiga eftir sumarið.
Page 49 of 56