Tilkynning um keppni Opnunarmót kæna 2020
- Details
Opnunarmót kæna
30-31. maí 2020
Siglingafélagið Ýmir
TILKYNNING UM KEPPNI
1 REGLUR
1.1 Keppt verður samkvæmt reglum sem tilgreindar eru í Alþjóða kappsiglingareglum
2017-2020, kappsiglingafyrirmælum SÍL og kappsiglingafyrirmælum mótsins.
1.2 Keppni og samskipti í landi, sjósetningar, upptaka báta, þvottur búnaðar og notkun búningsklefa og annað fara fram með þeim opinberu takmörkunum vegna COVID-19 sem verða i gildi þegar keppnin fer fram.
1.3 Keppnin getur fallið niður eða verið frestað ef upp kemur neikvæð þróun í stöðu COVID-19 sýkinga.
2 AUGLÝSINGAR
2.1 Auglýsingar verða leyfðar samkvæmt World Sailing reglugerð 20 um auglýsingar.
2.2 Auglýsingar sem keppnishaldari útvegar kann að þurfa sýna á bátum eða búnaði.
3 HLUTGENGI OG ÞÁTTTAKA
3.1 Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL. Stefnt er að keppni í eftirfarandi flokkum:
- Optimist
- Laser 4,7
- Laser radial
- Laser standard
- Topper Topaz
- Opnum flokki samkvæmt forgjöf frá SÍL
Verði þátttakendur í einhverjum flokki færri en fimm verður sá flokkur hluti af opnum flokki.
4 ÞÁTTTÖKUGJALD
Þátttökugjald á hvern keppanda er kr. 3000. Innifalið er grill eða veitingar eftir keppni.
Gjaldið hækkar í kr. 3500 ef skráning berst eftir kl. 21:00 þann 25. maí. Gjald greiðist inn á reikning: 536 - 26- 6634 Kt:. 470576-0659
Senda skal staðfestingu á greiðslu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
5 SKRÁNING
Skráning skal berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 mánudaginn 25. maí með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Taka þarf nafn keppanda, kennitölu, seglanúmer, bátstegund, félag sem keppt er fyrir og símanúmer keppanda. Ef keppandi er undir 18 ára þarf nafn og símanúmer foreldris/forráðamanns að fylgja með.
6 TÍMAÁÆTLUN
- maí
Skráningafrestur rennur út 21:00
- maí
Skipstjórafundur kl. 9:00
Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni kl. 10:25 Ekki verður ræst eftir kl. 15:00
Afhending verðlauna og grill/veitingar fyrir þátttakendur verður að lokinni síðustu umferð.
- maí er varadagur, en ef veður/veðurspá verður i betri kantinum þá áskilur keppnisstjóri sér rétt til að nota 31. maí til að fá fleiri umferðir og hafa verðlaunaafhendingu og grill/veitingar á eftir
Ef 31. mai verður notaður þá verður
Skipstjórafundur kl. 9:00
Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni kl. 10:25 Ekki verður ræst eftir kl. 15:00
Afhending verðlauna og grill/veitingar fyrir þátttakendur verður að lokinni síðustu umferð.
Vegna COVID-19 áskilur keppnisstjóri sér rétt til að hafa startlínur í lengri kantinum til að tryggja 2m bil milli báta og gefa keppendum rúman tíma til sjósetningar og að koma sér út á keppnissvæði.
7 KAPPSIGLINGAFYRIRMÆLI
Kappsiglingafyrirmælin verða afhent fyrir skipstjórafund og verða birt á tilkynningartöflu á
mótsstað.
8 KEPPNISSVÆÐI
Keppt verður á Skerjafirði og innfjörðum hans.
9 KEPPNISBRAUTIR
Brautum verður nánar lýst í kappsiglingafyrirmælum
10 STIGAGJÖF
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóðakappsiglingafyrirmælum.
Ef kepptar verða þrjár eða færri umferðir, reiknast allar til stiga, annars kastar hver keppandi sinni lökustu keppni.
11 FJARSKIPTI
Bátar skulu ekki hafa samskipti með talstöð sem ekki eru aðgengileg öllum meðan þeir keppa nema í neyðartilvikum.
Þessi takmörkun gildir einnig um farsíma.
Keppnisstjórn notar rás 6 til samskipta.
12 VERÐLAUN
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki.
13 TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
Keppendur sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4 í Alþjóðakappsiglingafyrirmælum, ákvörðun um að keppa. Skipuleggjendur firra sig allri ábyrgð vegna skemmda, líkamstjóns eða dauðsfalla í tengslum við, fyrir eða eftir keppni eða á meðan keppni stendur.
14 ÖRYGGIS- OG GÆSLUBÁTAR
Óskað er eftir því að siglingaklúbbar sem senda börn yngri en 18 ára leggi til að minnsta kosti einn öryggisbát. Öryggis- og gæslubátar skulu halda sig í hæfilegri fjarlægð frá keppendum á tilteknu svæði og mega ekki hafa samskipti við keppendur á meðan á keppni stendur nema í neyðartilvikum.
Tilkynnt verður á skipstjórafundi hvar öryggis- og gæslubátar eiga að vera meðan keppni stendur.
14 FREKARI UPPLÝSINGAR
Frekari upplýsingar fást hjá keppnisstjórn, Aðalsteinn Jens Loftsson, í síma 693 2221 eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
SIGLINGASAMBAND ÍSLANDS LEITAR AÐ STARFSMANNI
- Details
Siglingasamband Íslands leitar að starfsmanni í hlutastarf á skrifstofu sambandsins í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Leitað er að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, er jákvæður og á auðvelt með samskipti við fólk á öllum aldri. Starfsmaður heyrir beint undir stjórn sambandsins og megin hlutverk er eftirfylgni við stefnu og markmið hennar.
STARFSSVIÐ
- Daglegur rekstur og stjórnun. Í því felst m.a. gerð ársáætlunar, rekstraráætlunar og eftirfylgni við stefnu og markmið stjórnar
- Sjá um samskipti sambandsins, við hagsmunaaðila ÍSÍ og alþjóða aðila, vefsíðu sambandsins og samfélagsmiðla.
- Halda utan um viðburði og fundi á vegum sambandsins.
- Gæðamál, eftirfylgni með mótahaldi og keppnisgögnum.
- Úrvinnsla gagna og skýrslugerð
- Bóka ferðir á íþróttamót og fundi sem sambandið sækir.
- Önnur tilfallandi verkefni skv ákvörðun stjórnar.
HÆFNISKRÖFUR
- Mjög góður í mannlegum samskiptum.
- Geta tjáð sig í ræðu og riti á Íslensku og ensku.
- Skipulagshæfni og getu til að starfa sjálfstætt.
- Sveigjanleiki í vinnutíma.
- Þekking á helstu forritum Microsoft office.
- Jákvæðni og metnaður.
- Bílpróf og aðgangur að bíl.
´Áhugasamir sendi umsóknarbréf og ferilskrá á netfagnið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 3. apríl 2020.
Ný stjórn kosin á Siglingaþingi
- Details
Siglingaþing var haldið þann 22 febrúar síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Fyrir þinginu lágu hefðbuninn þingstörf og mættu fulltrúar siglingafélagan til að fara yfir mótaskrá og fjármál sambandsins auk þess að velja því nýja stjórn.
Fáar tillögur lágu fyrir þinginu en þó lá fyrir stjórn tillaga um breytingar á kappsiglingafyrirmælum er varða íslandsmeistaramót er varðaði fjölda umferða og uppstilllingu brauta. Nokkur umræða spratt um tillögur stjórnar sem á endanum var felld. Eigi að síður kom fram skýr vilji til þess að SÍL gegndi veigameira eftirlitshlutverki með mótahaldi.
Nokkrar breytingar urðu á stjórn sambandsins en þau Sigurjón Magnússon Kayakklúbbnum, Ragnar Hilmarsson Þyt, Gunnar Geir Halldórsson Þyt, Marcel Mendes da Costa Brokey gáfu ekki kost á sér til frekari stjórnasetu en í þeirra stað voru þau Ríkarður Daði Ólafsson Ými, Markús Pétursson Þyt, Hulda Stefania Hólm Þyt, Sigríður Ólafsdóttir Ými, og Ólafur Bjarnason Ými kosinn. Aðalsteinn Jens Loftsson verður sjálfkjörinn til áframhaldandi formennsku Siglingasambands Íslands.
Stjórnin mun skipta með sér verkum á næsta stjórnarfundi.
Þinggerð fundarins verður birt á næstu dögum.
Siglingaþing 2020
- Details
Siglingaþing SÍL 2020 verður haldið á morgun 22. febrúar. Meðal þess sem fjallað verður um á þinginu er ný afreksstefna sem gilda mun til ársins 2025. Nýja stefnan er unnin samkvæmt nýrri reglugerð um afrekssjóð og flokkun sérsambanda. Reglugerð um afrekssjóð má finna á heimasíðu ÍSÍ eða hér. Ársskýrsla SÍL sem lögð verður framm á þinginu er einnig kominn á vef sambandsins og má finna hér ásamt eldir ársskýrslum.
Page 30 of 55