Loksins er komið að því! Uppskeruhátíð SÍL verður haldin í hádeginu laugardaginn 17. desember í Cafe Easy, Íþróttamiðstöðinni Laugardal.Í boði er létt jólahlaðborð á aðeins 1500 kr.
Veitt verða verðlaun þeim sem hafa skarað framúr á árinu. Meðal verðlauna sem veitt verða eru: siglingamaður og -kona ársins, kayakmaður og -kona ársins, sjálfboðaliði ársins og mesta siglingaefnið. Einnig verður Íslandsbikarinn afhentur. Kjörið tækifæri fyrir siglinga- og kayakfólk til að koma saman og eiga notalega stund áður en það dembir sér í jólaösina. Hægt er að tilkynna þátttöku á facebook-síðu SÍL, en það hjálpar okkur að áætla fjölda matargesta. Allir hjartanlega velkomnir.