Siglingaþing 2017
- Details
Þann 25. febrúar síðastliðinn var haldið 44. Siglingaþing SÍL. Þingið var ágætlega sótt og má nefna að tvö nýstofnuð félög sendu fulltrúa og var vel tekið á móti þeim. Þessi félög eru Sjósportsklúbbur Austurlands sem stofnaður var á Eskifirði 2015 og Sigurfari - sjósportsfélag Akraness sem stofnað var í fyrra.
Nokkur endurnýjun var á stjórn SÍL. Nýir stjórnarmenn eru Andri Þór Arinbjörnsson og Ragnar Hilmarsson. Nýir varamenn voru kjörnir Ingvar Björnsson, Eyþór Agnarsson og Rúnar Þór Björnsson.
Á þinginu var samþykkt eftirfarandi tillaga um að SÍL marki sér stefnu um sjálfbærni:44. Siglingaþing 25. Febrúar 2017 felur stjórn Siglingasambands Íslands að marka sambandinu stefnu um sjálfbærni og leiðbeiningar fyrir aðildarfélögin til samræmis við þá stefnu, með hliðsjón af áherslu Alþjóða Ólympíu-hreyfingunnar og Alþjóða siglingasambandsins, World Sailing. SÍL fagnar þessari tillögu en eins og fram kemur í tillögunni hefur World Sailing markað sér mjög skýra stefnu í þessum málum og er vinna þegar hafin hjá SÍL við innleiðingu hennar.
Árskýrslu SÍL 2017 má nálgast hér.
Viðurkenningar fyrir árið 2016
- Details
Nú um helgina var haldin jólagleði og uppskeruhátið SÍL fyrir árið 2016. Að venju var veittur fjöldi verðlauna.
Siglingakona ársins: Hulda Lilja Hannesdóttir. Siglingamaður ársins: Þorgeir Ólafsson.
Sveinn Axel Sveinsson og Björg Kjartansdóttir voru kayakræðara ársins.
Jólagleði og uppskeruhátíð SÍL
- Details
Loksins er komið að því! Uppskeruhátíð SÍL verður haldin í hádeginu laugardaginn 17. desember í Cafe Easy, Íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Íslandsmót í kænusiglingum 2016
- Details
Íslandsmótið í kænusiglingum verður nú um helgina og er það Siglingafélagið Ýmir í Kópavogi sem heldur mótið í ár. Það stefnir í að þátttaka verði mjög góð og veðurspáin lofar góðu. Það má því gera ráð fyrir skemmtilegu móti.
Á þessari slóð má finna tilkynningu um keppni.
Page 45 of 55