P50800163

Boðið verður uppá öryggis- og kennslubátanámskeið um helgina (11-13. maí). Námskeiðið hefst kl 19 á föstudagskvöldi og lýkur kl 17 á sunnudegi. Námskeiðið er samtals 20 klst og er þeim sem ljúka námskeiðinu og standast kröfur veitt skírteini því til staðfestingar.

Annað námskeið verður helgina eftir (18-20. maí) en það verður hugsanlega á Akureyri og verður auglýst nánar síðar. Hvetjum við þá sem vilja sækja námskeiðið í Reykjavík að skrá sig á fyrra námskeiðið.

Námskeiðið verður haldið í aðstöðu Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi og á Skerjafirðinum.

Námskeið þetta er samvinnuverkefni Slysavarnaskóla sjómanna (Sæbjörg) og Siglingasambands Íslands (SÍL). Námskeiðið er ætlað fólki sem vinnur við siglingakennslu og sér um að leiðbeina og tyggja öryggi nemenda sinna. Námskeiðið er unnið eftir kröfum frá Siglingasambandi Íslands. Markmið námskeiðsins er að kenna þær aðferðir og tækni sem notuð er á litlum vélbátum til að veita öryggi og björgun fyrir flota af kænum í kennslu eða keppni. Sá sem hyggst sækja öryggis- og kennslubáta námskeið SÍL og Sæbjargar skal hafa grunn þekkingu á kænum.

Lágmarksaldur er 16 ára. 
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Nemendur mæti vel klæddir tilbúnir að fara á sjó.
Matur er ekki innifalinn í námskeiðinu.

Skráning á fyrra námskeiðið er hafin undir flipanum skráningar hér til vinstri.