Frakkarnir snúa aftur
- Details
Sumarið 2020 stóð IMOCA classinns fyrir stuttri keppni upp að Íslands ströndum og aftur til Frakklands. Lagt var af stað frá Les Sables d'Olonne og siglt að veður dufli í vestan við Ísland. Í þetta sinn á að sigla lengra 3500 sjómílur frá Les Sables d'Olonne upp með austurströnd Íslands norður fyrir Grímsey og svo suður með vesturströnd landsins. Gert er ráð fyrir að ræsa keppendur þann 12.júní og að þeir ljúki keppninni á 10-12 dögum. Listi um keppendur verðu birtur þann 19 maí.
Siglingafólk ársins 2021
- Details
Síðastliðinn föstudag veitti ÍSÍ íþróttafólki sérsambandanna fyrir góðan árangur á árinu 2021. Afheningin tafðist vegna kórónuveirufaraldursins en eins og áður segir fór framm á föstudaginn.
Siglngafólk ársins 2021 voru þau Hólmfríður Gunnardóttir Brokey og Aron Árnason Brokey
Hólmfríður Gunnarsdóttir er okkar fremsta kænu siglingakona hún hefur stundað siglingar í Siglingafélaginu Brokey síðan hún man eftir sér. Byrjaði að keppa á optímisti þegar hún var níu ára með góðu móti og var alltaf að bæta sig. Þegar hún varð sextán ára færðist hún upp um flokk og hóf að sigla Laser, þar sem hún náði góðum árangri keppti m.a. nokkrum sinnum á Norðurlandamóti unglinga. Hólmfríður keppti á Heimsmeistaramóti Unglinga í Oman, Desember 2021 og lenti í 42 sæti. Þetta er besti árangur Íslands á alþjóðasiglingamóti í ár. Besti árangur hennar í keppninni var 25. sæti í umferð nr. 6.
Aron Elfar Árnason er eigandi og skipstjóri skútunnar Íris sem er af gerðinni X-79. Hann keppir fyrir Siglingafélag Reykjavíkur - Brokey og hefur gert það til fjölda ára. Aron og áhöfn hans hafa staðið sig vel undanfarin ár og í ár gekk allt upp hjá þeim. Ekki aðeins náðu þeir frábærum árangri á Íslandsmeistaramótinu í sumar með sigri í þremur umferðum og öðru sæti í öðrum þremur sem skilaði skútunni Írisi í öruggt fyrsta sæti heldur unnu þeir einnig MBL mótaröðina með öryggi. Árangur Írisar og skipstjóra hennar á árinu er ástæða þess að Aron er svo sannarlega Siglingamaður ársins 2021.
Æfingabúðir 2022
- Details
Siglingafélagið Knörr bíður okkur öll velkominn á æfingabúðir í Reykjanes í sumar. Búðirnar verða í samvinnu Knarrar og SÍL dagana 26.júní til 2. júlí. Búið er að ráða Íslandsvininn Tom Wilson til að leiða búðirnar í ár en hann hefur verið oft með okkur áður síðast 2015 á Akranesi. Hugmyndin er að í ár munum við bjóða uppá sérstaka þjálfara samvinnu á búðunum undir skipulagi Tom auk þess sem ætlunin er að höfða til nýrra og minni siglinafélaga á landinu með sérstökum hóp og svo að sem flestir fái tækifæri til að koma og sigla saman.
Skipulagsvinna að búðunum er komin á fullt og vonumst við að allar upplýsingar um mat, verð og gistingu liggi fyrir sem allra fyrst.
Siglingaþing 2022
- Details
Nú á sunnudag fór fram 49. Siglingaþing SÍL. Ekki lágu margar tillögur fyrir þinginu en framfóru hefðbundin aðalfundarstörf. Aðalsteinn Jens Loftsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannssetu en gaf þó kost á sér til setu í stjórn til ráðgjafar og stuðnings við nýjan formann og stjórn. Meðal mála sem lágu fyrir var mótaskrá 2022 og 2023 og eru þær birtar undir flipanum Mótahald hér vinstra megin. Góðar umræður voru á þinginu og einhugur um framgang siglingaíþróttarinnar á Íslandi.
Nokkrar breytingar urðu á stjórn og komu fimm nýjir stjórnarmenn að borðinu.
Nýja stjórnin á enn eftir að skipta með sér verkum en hana skipa:
Gunnar Haraldsson formaður
Anna Karen Jörgensdóttir meðstjórnandi
Anrar Jónsson meðstjórnandi
Gauti Elvar Arnarson meðstjórnandi
Markús Pétursson meðstjórnandi
Varamenn eru
Aðalsteinn Jens Lofstsson
Gunnar Úlfarsson
Ríkarður Ólafsson
Hægt er að nálgast þinggerð þingsins hér.
Page 13 of 55