Æfingabúðir dagskrá
- Details
ÆFINGABÚÐIR AKRANESI 2020
Dagskráin byrjar sunnudaginn 28. júní eftir hádegi og æft verður alla daga fram á fimmtudag en á föstudag og laugardag verður æfingabúðamót. Nánari dagskrá er að finna hér á eftir. Áríðandi er að fólk skrái sig fyrir 26. júní og gott væri að vita hvort börn verða ein eða með foreldrum og hvort þau gista í sameiginlegri aðstöðu eða ekki.
Aðstaðan:
Siglingaaðstaðan á Akranesi er sandfjaran við Langasand. Gistiaðstaða fyrir þátttakendur og aðstandendur þeirra verður í Grundarskóla, sem er rétt hjá sundlaug Akraness. Þar verður aðstaða til morgunverðar og funda. Þeir sem eru í gistingu verða að koma með dýnur og annan viðlegubúnað sjálfir.
Dagskrá:
Sunnudagur 28. júní er komudagur á Akranesi. Þátttakendur mæta á svæðið, taka báta af kerrum og sjósetja, koma sér fyrir í skólanum o.s.frv. Ekki verður boðið upp á mat eða kaffi þann daginn. Um kvöldið verður farið yfir uppbyggingu vikunnar. Annars verða dagarnir skipulagðir í meginatriðum á eftirfarandi hátt:
08:00 - 08:40 Morgunmatur
08:40 - 09:40 Æfing í sal / útihlaup
09:40 - 10:20 Fundur um viðfangsefni dagsins
10:20 – 11:00 Bátar gerðir sjóklárir
11:00 - 13:00 Æfingar á sjó
13:00 - 14:00 Hádegismatur með léttum fundi á eftir
14:00 - 15:30 Æfingar á sjó
15:30 - 16:00 Millimál / kaffi
Eftir hádegi föstudaginn 3. júlí og laugardaginn 4. júlí verður haldið æfingabúðamót.
Frágangur og brottför sunnudaginn 5. júlí en ekki verður boðið upp á mat eða kaffi þann daginn.
Þjálfarar
Yfirþjálfari verður Gunnar Kristinn Óskarsson en auk hans koma þjálfarar frá siglingafélögunum á landinu og sameina þeir krafta sína í að gera þessa viku einstaklega skemmtilega og eftirminnilega.
Matarmál
Innifalið í þátttökugjaldinu er: Morgunverður, brauð, álegg, morgunkorn ofl., sem framreiddur er í skólanum. Hádegisverður, t.d. súpa ofl. Millimál / kaffi, t.d. brauð og ávextir Grillpartí fimmtudaginn 2. júní. (staðsetning nánar auglýst síðar)
Kostnaður
Gjald fyrir æfingabúðir er fyrst og fremst matarkostnaður og gildir því einu hvort heldur sem gist er í sameiginlegri aðstöðu eða ekki. Gert er ráð fyrir að verðið verði um 18.000 krónur. (Sama gjald er fyrir aðstandendur og þjálfara) Hægt er fyrir aðstandendur að kaupa sig sérstaklega inn í grillpartíið fyrir 2.500 kr.
Skráning
Skráningin fer fram hjá félögunum og skulu þátttakendur tilgreina hvort þeir séu í gistingu í skóla. Þá eru aðstandendur einnig beðnir um að skrá sig í mat eingöngu annars vegar eða hins vegar í mat og gistingu ef ætlunin er að taka annað hvort. Félögin eru svo beðin um að koma skráningarlistum sínum til Siglingasambands Íslands eigi síðar en 26 júní: netfangið er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Það sem á að koma fram í skránigunni:
Nafna þáttakanda
Sími Þáttakanda
Kennitala
Nafna forráðamann
Sími forráðamann
Nafna forráðamann 2
Sími forráðamann 2
Hvort að hann ætlar að gista í skólanum
Bátur
Annað
Félögin eru skildi að skaffa umsjónar- og ábyrgðarmenn þeirra þátttakenda sem verða í gistingu í skóla. Þeir ábyrgðar aðilar sem koma með þátttakendur geta átt vona á að fá einhver minniháttar störf sem fylgja æfingabúðum sem þessum.
Afþreying Fjölmargt er í boði á Akranesi og nágrenni fyrir foreldra og aðstandendur. Fjölmargir veitingastaðir eru í bænum auk safna og útivistarmöguleika. Við hvetjum alla til að taka reiðhjólin með. Allar nánari upplýsingar um bæinn og afþreyingu þar má finna á http://www.west.is/is/west/town/akranes
Úrslit miðsumarsmóts kæna
- Details
Miðsumarmót 2020 Opinn flokkur |
|||||||||||||||||||||||
Nafn | Félag | Seglanr. | Bátur | HC | Umferð 1 | Leiðréttur tími | Stig | Umferð 2 | Leiðréttur tími | Stig | Umferð 3 | Leiðréttur tími | Stig | Umferð 4 | Leiðréttur tími | Stig | Umferð 5 | Leiðréttur tími | Stig | Umferð 6 | Leiðréttur tími | Stig | Stig samtals |
Tara Ósk Markúsdóttir | Þytur | 209967 | Laser Radial | 1147 | 00:26:59 | 00:23:32 | 1 | 00:26:50 | 00:23:24 | 2 | 00:29:18 | 00:25:33 | 2 | 00:13:55 | 00:12:08 | 2 | 00:13:02 | 00:11:22 | 2 | 00:12:42 | 00:11:04 | 2 | 11 |
Hólmfríður Gunnarsdóttir | Brokey | 1 | Laser 4,7 | 1208 | 00:30:24 | 00:25:10 | 4 | 00:30:36 | 00:25:20 | 4 | 00:32:25 | 00:26:50 | 3 | 00:14:28 | 00:11:59 | 1 | 00:12:36 | 00:10:26 | 1 | 00:13:20 | 00:11:02 | 1 | 14 |
Aðalsteinn Jens Loftsson | Ýmir | 3284 | RS-Aero 9 | 1014 | 00:25:13 | 00:24:52 | 3 | 00:25:36 | 00:25:15 | 3 | 00:25:07 | 00:24:46 | 1 | 00:14:20 | 00:14:08 | 4 | dnf | 6 | 00:12:51 | 00:12:40 | 4 | 21 | |
Árni Friðrik Guðmundsson | Brokey | 111 | Lazer 4,7 | 1208 | 00:31:47 | 00:26:19 | 5 | 00:32:39 | 00:27:02 | 5 | 00:35:49 | 00:29:39 | 4 | 00:15:52 | 00:13:08 | 3 | 00:13:12 | 00:10:56 | 3 | 00:13:55 | 00:11:31 | 3 | 23 |
Rúnar Steinsen | Þytur | 192 | Finn | 1049 | 00:25:56 | 00:24:43 | 2 | 00:24:12 | 00:23:04 | 1 | dns | 7 | dns | 7 | dns | 7 | dns | 7 | 31 | ||||
Miðsumarmót 2020 Optimist | |||||||||||||||||||||||
Nafn | Félag | Seglanr. | Bátur | HC | Umferð 1 | Stig | Umferð 2 | Stig | Umferð 3 | Stig | Stig | Stig | Umferð 6 | Stig | Stig Samtals | ||||||||
Hjalti Björn Bjarnason | Brokey | 69 | Optimist | 1642 | 00:20:29 | 1 | 00:20:42 | 1 | 00:46:49 | 1 | 00:12:17 | 1 | 00:09:31 | 1 | 00:09:05 | 1 | 6 | ||||||
Hrafnkell Stefán Hannesson | Brokey | 23 | Optimist | 1642 | 00:21:25 | 2 | 00:21:51 | 2 | 00:48:03 | 2 | 00:12:56 | 2 | 00:10:01 | 2 | 00:09:47 | 2 | 12 | ||||||
Marek Ari Baeumer | Þytur | 323 ISL | Optimist | 1642 | 00:28:13 | 4 | 00:27:11 | 3 | 01:03:50 | 3 | 00:13:48 | 3 | 00:10:22 | 3 | 00:10:20 | 3 | 19 | ||||||
Hildur Karen | Þyur | 324 ISL | Optimist | 1642 | 00:26:00 | 3 | dns | 7 | dns | 7 | 00:17:19 | 4 | 00:12:11 | 4 | 00:15:42 | 4 | 29 | ||||||
Kjartan Christiansson | Þytur | 322 ISL | Optimist | 1642 | dns | 7 | dns | 7 | dns | 7 | dns | 7 | dns | 7 | dns | 6 | 35 | ||||||
Faxaflóamót kjölbáta 2020
- Details
Skráning er hafin fyrir hið árlega Faxaflóamót kjölbáta sem mun fara fram þann 27. og 28. júni n.k.
Í ár er ætlunin að stitta aðeins mótið og leggja af stað frá Reykjavík á laugardagsmorgninum, sigla upp á skaga, taka smá pásu og taka svo eina til tvær umferðir fyrir utan.
Sigurfari ætlar að taka á móti okkur og verður með mat um kvöldið sem selt verður sérstaklega í.
sjá nánar
http://brokey.is/wp-content/uploads/2020/06/NOR-Faxafl%C3%B3am%C3%B3t-kj%C3%B6lb%C3%A1ta-2020.pdf
Miðsumarmót Kæna 2020 13-14 júní
- Details
Siglingafélagið Þytur
TILKYNNING UM KEPPNI
1 REGLUR
1.1 Keppt verður samkvæmt reglum sem tilgreindar eru í Alþjóða kappsiglingareglum
2017-2020, kappsiglingafyrirmælum SÍL og kappsiglingafyrirmælum mótsins.
1.2 Keppni og samskipti í landi, sjósetningar, upptaka báta, þvottur búnaðar og notkun búningsklefa og annað fara fram með þeim opinberu takmörkunum vegna COVID-19 sem verða i gildi þegar keppnin fer fram.
1.3 Keppnin getur fallið niður eða verið frestað ef upp kemur neikvæð þróun í stöðu COVID-19 sýkinga.
2 AUGLÝSINGAR
2.1 Auglýsingar verða leyfðar samkvæmt World Sailing reglugerð 20 um auglýsingar.
2.2 Auglýsingar sem keppnishaldari útvegar kann að þurfa sýna á bátum eða búnaði.
3 HLUTGENGI OG ÞÁTTTAKA
3.1 Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og
keppendareglum SÍL. Stefnt er að keppni í eftirfarandi flokkum:
- Optimist
- Laser 4,7
- Laser radial
- Laser standard
- Topper Topaz
- Opnum flokki samkvæmt forgjöf frá SÍL
Verði þátttakendur í einhverjum flokki færri en fimm verður sá flokkur hluti af opnum flokki.
4 ÞÁTTTÖKUGJALD
Þátttökugjald á hvern keppanda er kr. 3000. Innifalið er grill eða veitingar eftir keppni á laugardeginum.
Gjaldið hækkar í kr. 3500 ef skráning berst eftir kl. 21:00 þann 11. júní. Gjald greiðist inn á reikning: 0544 - 26- 31871 Kt:. 680978-0189
Senda skal staðfestingu á greiðslu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
5 SKRÁNING
Skráning skal berast til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 mánudaginn 25. júní með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Taka þarf nafn keppanda, kennitölu, seglanúmer, bátstegund, félag sem keppt er fyrir og símanúmer keppanda. Ef keppandi er undir 18 ára þarf nafn og símanúmer foreldris/forráðamanns að fylgja með.
6 TÍMAÁÆTLUN
- júní
Skráningafrestur rennur út 21:00
- júní
Skipstjórafundur kl. 9:00
Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni kl. 10:25 Ekki verður ræst eftir kl. 15:00
Grill/veitingar fyrir þátttakendur verður að lokinni síðustu umferð.
- júní
Skipstjórafundur kl. 9:00
Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni kl. 10:25 Ekki verður ræst eftir kl. 14:00
Afhending verðlauna og léttar veitingar fyrir þátttakendur verður að lokinni síðustu umferð.
Vegna COVID-19 áskilur keppnisstjóri sér rétt til að hafa startlínur í lengri kantinum til að tryggja 2m bil milli báta og gefa keppendum rúman tíma til sjósetningar og að koma sér út á keppnissvæði.
7 KAPPSIGLINGAFYRIRMÆLI
Kappsiglingafyrirmælin verða afhent fyrir skipstjórafund og verða birt á tilkynningartöflu á
mótsstað.
8 KEPPNISSVÆÐI
Keppt verður í Hafnarfirði.
9 KEPPNISBRAUTIR
Brautum verður nánar lýst í kappsiglingafyrirmælum
10 STIGAGJÖF
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóðakappsiglingafyrirmælum.
Ef kepptar verða þrjár eða færri umferðir, reiknast allar til stiga, annars kastar hver keppandi sinni lökustu keppni.
11 FJARSKIPTI
Bátar skulu ekki hafa samskipti með talstöð sem ekki eru aðgengileg öllum meðan þeir keppa nema í neyðartilvikum.
Þessi takmörkun gildir einnig um farsíma.
Keppnisstjórn notar rás 71 til samskipta.
12 VERÐLAUN
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki.
13 TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR
Keppendur sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4 í Alþjóðakappsiglingafyrirmælum, ákvörðun um að keppa. Skipuleggjendur firra sig allri ábyrgð vegna skemmda, líkamstjóns eða dauðsfalla í tengslum við, fyrir eða eftir keppni eða á meðan keppni stendur.
14 ÖRYGGIS- OG GÆSLUBÁTAR
Óskað er eftir því að siglingaklúbbar sem senda börn yngri en 18 ára leggi til að minnsta kosti einn öryggisbát. Öryggis- og gæslubátar skulu halda sig í hæfilegri fjarlægð frá keppendum á tilteknu svæði og mega ekki hafa samskipti við keppendur á meðan á keppni stendur nema í neyðartilvikum.
Tilkynnt verður á skipstjórafundi hvar öryggis- og gæslubátar eiga að vera meðan keppni stendur.
14 FREKARI UPPLÝSINGAR
Frekari upplýsingar fást hjá keppnisstjórn, Markúsi Péturssyni, í síma 841 0457 eða með tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Page 28 of 54