Íslandsmót Kæna 2015 tilkynning um keppni.
- Details
Það er siglingafélagið Brokey sem sér um Íslandsmót kæna í ár. Mótið verður haldið á Sundunum við Reykjavík innan eyja. Sjósett verður í Örfisey og bátarnir geymdir þar. Fyrsti keppnisdagur er 7. ágúst. ATH. Skráningarfrestur er 3. ágúst 2015. Nánari upplýsingar um mótið má finna í hér í tilkynningu um keppni.
Tilkynning um keppni Eimskipafélagsmót
- Details
Þann 10-11 júni verður haldið Eimskipafélagsmót í tengslum við Æfingabúðir SÍL á Akranesi Tilkynningu um keppni má finna hér
Æfingabúðir Akranesi 5-11 júlí
- Details
Loksins liggur fyrir dagskrá fyrir Æfingabúðirnar á Akranesi nú í júlí. Æfingabúðirnar í ár eru í umsjón siglingafélaganna á höfuðborgarsvæðinu, Brokeyjar, Ýmis og Þyts. Yfirþjálfari verður íslandsvinurinn Tom Wilson. Siglingasvæðið við Akranes er afar spennandi og er von okkar að veðrið verði sem allra best. Til að skrá sig er bent á þjálfara og stjórnir siglingafélaganna.
Þjálfara Námskeið 1 stig.
- Details
Dagana 14-17. maí verður haldið námskeið fyrir siglingaþjálfara um er að ræða 1. stig siglingaþjálfara. Kennari er Ólafur VÍðir Ólafsson. Ólafur er íþróttafræðingur og hefur lokið öllum þremur stigum siglingaþjálfunar hjá SÍL. Þær kröfur eru gerðar til nemenda að þeir hafi fullt vald á að sigla seglbát sambærilegu 4.stigi í "Siglingabókinni" og nái 18 ára aldri á árinu. Verð á námskeiðið er 20.000 krónur á mann. Innifalið í verðinu eru kennslugögn. Ekki er enn búið að ´ákveða hvar á höfuðborgarsvæðinu námskeiðið fer framm tilkynnt verður um það eftir helgi.
Þeir sem vilja skrá sig eða einstaklinga á námskeiðið hafi samband við SÍL með tölvupósti - sil(hja)silsport.is.Takið fram nöfn og kennitölur þeirra sem sækja vilja námskeiðið auk upplýsinga um greiðanda.
Page 46 of 50